Íslenskuþorp í leikskólum um land allt – Haustönn 2025
Menntafléttunámskeið
september
-
maí
Lýsing
Þróunarhringur
Sækja um ráðgjöf
Dagskrá
Íslenskuþorp í leikskólum um land allt
Skráningu á námskeiðið er lokið fyrir skólaárið 2024-2025.
Námskeiðið er fyrir starfsfólk leikskóla sem hefur annað móðurmál en íslensku.
Á námskeiðinu verður fléttað saman fagtengdri íslenskukennslu og 8 fjölbreyttum þemum úr leikskólastarfi. Námskeiðið byggir á samtali þátttakenda, uppbyggingu tengslanets og samstarfi þátttakenda og mentora innan leikskólanna. Þátttakendur, mentorar þeirra og leikskólastjórar kynnast menningarnæmi og fjölmenningarlegum áherslum leikskólastarfs og fá tækifæri til að byggja upp þekkingu innan leikskólanna á ofangreindu til framtíðar. Skráningarfrestur er til og með 1. september – Athugið að við skráningu á námskeiðið skal skrá leikskólastjóra og tvo mentora, einn aðalmentor og einn til vara. Fyrir nánari upplýsingar má skrifa tölvupóst til Guðlaugar Stellu umsjónarkennara námskeiðsins; gudlaugs@hi.is – einnig má slá á þráðinn í síma 8988128.
Við lok námskeiðs hafa þátttakendur;
-
- eflt hæfni sína í fagtengdri íslensku í leikskóla og aukið sjálfstraust í notkun íslenskunnar í leikskólanum.kynnst 8 ólíkum þemum leikskólastarfs með áherslu á ný hugtök og hvernig þau koma fyrir í leikskólastarfi.
-
- kynnst 8 ólíkum þemum leikskólastarfs með áherslu á ný hugtök og hvernig þau koma fyrir í leikskólastarfi.
-
- eignast tengslanet í leikskólum víða um land og kynnst fjölbreyttu leikskólastarfi þátttakenda sem og gestakennara.
-
- byggt upp, ásamt mentorum sínum, þekkingu innan sinna leikskóla á menningarnæmi og fjölmenningarlegum áherslum í leikskólastarfi.
Fyrir hverja er námskeiðið og hvaða skilyrði þurfa að vera til staðar?
Námskeiðið er fyrir lengra komið starfsfólk í íslensku. Mikilvægt er að ákveðin skilyrði séu til staðar svo að námskeiðið verði sem lærdómsríkast fyrir þátttakendur og námssamfélagið í leikskólunum. Stuðningur og hvatning stjórnenda skiptir sköpum en gert er ráð fyrir að þátttakendur taki þátt í námskeiðinu á vinnutíma og hafi tvo mentora sem verða honum samferða í gegnum námskeiðið. Samvinna mentora og þátttakenda er lykillinn að árangri í íslensku og aukinni þekkingu á faglegu starfi leikskólans. Allir þátttökuleikskólar fá heimsóknir með fræðslu og handleiðslu til að tryggja eftirfylgd og aðlögun námskeiðsins að þörfum þátttakenda og leikskólanna.
-
- Mentorar og leikskólastjórar mæta á fræðslu- og kynningarfund í upphafi námskeiðs 4. september kl. 14:00 – 15:00.
-
- Þátttakendur mæta á kynningarfund um fyrirkomulag námskeiðsins 18. september kl. 14:00 – 15:00.
-
- Þátttakendur mæta tvisvar í mánuði á zoom, samtals 3 klukkustundir í mánuði.
-
- Mentorar og þátttakendur taka frá tíma einu sinni í viku til að ræða þemu námskeiðsins við þátttakendur (mentorar skipta með sér verkum eftir aðstæðum).
-
- Umsjónarkennari heimsækir leikskólana tvisvar yfir skólaárið, í september og janúar.
Eins og í öðrum Menntafléttunámskeiðum eru þátttakendur í samráði við sína stjórnendur um þátttöku á námskeiðinu og einnig í samráði um val á mentorum úr samstarfshópnum. Með því eru leikskólastjórar meðvitaðir um að styðja við þróun námssamfélags í leikskólanum.
Á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar er gert ráð fyrir að þátttakendur nýti þróunarhring í fjórum skrefum, sem styður við samræður um innleiðingu breyttra starfshátta í námi og kennslu. Skrefin fjögur eru:
Skref A: Þátttakendur undirbúa sig með lestri eða áhorfi – og undirbúa spurningar.
Skref B: Þátttakendur funda með teymi sínu og gera áætlun um útfærslu í starfi.
Skref C: Þátttakendur og teymi þeirra framkvæmir áætlun og skrá hjá sér athuganir.
Skref D: Þátttakendur funda aftur með teyminu og ræða hvernig til tókst og hvernig nemendur brugðust við.
Þátttakendum á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar stendur til boða að fá ráðgjöf og stuðning um hvernig best er að koma sér af stað við að vinna efni hvers námskeiðs. Jafnframt fá þeir kynningu á þeirri hugmyndafræði sem námskeið Menntafléttunnar byggja á.
Ráðgjöfin verður sniðin að þörfum þeirra sem sækja um hana og verður án endurgjalds skólaárið 2024-2025.
Sótt er um ráðgjöf á vefsvæði hvers námskeiðs fyrir sig.
Mælt er með að þátttakendur á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar sæki um ráðgjöf til að koma sér af stað við að vinna efni námskeiðsins.
Í kjölfarið fá þeir póst frá sérfræðingi Menntafléttunnar.
Skráningu á námskeið skólaárið 2024-2025 er lokið.
Hvar og hvernig fer námskeiðið fram?
Kennslan fer fram í 8 lotum á ZOOM, skólaárið 2024-2025. Loturnar eru þannig uppbyggðar að allir þátttakendur mæta í 1,5 klukkustunda fyrirlestur þar sem gestakennari fjallar um þema lotunnar. Tveimur vikum seinna mæta þátttakendur í litlum getuskiptum hópum í 1,5 klukkustund í íslenskutíma. Nám þátttakenda fer þó aðallega fram í leikskólum þátttakenda í samtali þátttakenda og mentora um þemu námskeiðsins.
Í september og janúar heimsækir kennari frá Íslenskuþorpinu alla þátttakendur og mentora á vinnutíma.
Skrefin fjögur og vikuskipulag (haustönn 2024)
Lota 1 – Málörvun með sögum
30. sept.–4. okt. Skref A+B
07.–11.okt. Skref B (fyrirlestur 9. okt kl 13:00 – 14:30)
14.–18. okt. Skref C
21.–25. okt. Skref D (íslenskutímar 23. okt)
Lota 2 – Læsi í víðum skilningi
28. okt,-01. nóv, Skref A+B
04.- 08. nóv. Skref B (fyrirlestur 6. nóv kl 13:00 – 14:30)
11.-15. nóv. Skref C
18.-22. nóv. Skref D (íslenskutímar 20. nóv)
Lota 3 – Leikur barna
25.–29. nóv Skref A+B
2.–6. des Skref B (fyrirlestur 4. des kl 13:00 – 14:30)
9.–13. des Skref C (íslenskutímar 11. des)
16.–20. des Skref D
Skrefin fjögur og vikuskipulag (vorönn 2025)
Lota 4 – Menningarnæmi og fjölmenning í leikskólastarfi
6.–10. jan Skref A+B (9. janúar kl 13:00-13:45 fundur með mentorum)
13 –17. jan Skref B (fyrirlestur 15. jan kl 13:00-14:30)
20.–24. jan Skref C
27.–31. jan Skref D (íslenskutímar 29. jan)
Lota 5 – Sjálfsmynd og samskipti í lýðræðislegu leikskólastarfi
3.–7. feb Skref A+B
10.–14. feb Skref B (fyrirlestur 12. feb kl 13:00 – 14:30)
17.–21. feb Skref C
24.–28. feb Skref D (íslenskutímar 26. feb)
Lota 6 – Foreldrasamstarf í fjölmenningarlegu leikskólastarfi
3.–7. mars Skref A+B
10.–14. mars Skref B (fyrirlestur 12. mars kl 13:00 – 14:30)
17.–21. mars Skref C
24.–28. mars Skref D (íslenskutímar 26. mars)
Lota 7 – Skapandi leikskólastarf
31. mars–4. apríl Skref A+B
7.–11. apríl Skref B (fyrirlestur 9. apríl kl 13:00 – 14:30)
14.–18. apríl Skref C
21.–25. apríl Skref D (íslenskutímar 23. apríl)
Lota 8 – Málörvun með tónlist
28. apríl–2. maí Skref A+B (30. apríl kl 13:00 – 13:45 fundur með mentorum)
5.–9. maí Skref B (fyrirlestur 7. maí kl 13:00 – 14:30)
12. – 16. maí Skref C
19. – 23. maí Skref D (íslenskutímar 21. maí)
“Ég vil koma á framfæri að mínir skjólstæðingar eru himinlifandi með þetta námskeið og við höfum fengið mikið út úr því að hittast og ræða námskeiðið. Vonandi verður áframhald á þessu námskeiði”.
Skólastjóri á Menntafléttunámskeiði veturinn 2022-2023.
Umsjónaraðilar námskeiðs
Ingibjörg Stefánsdóttir
Anna Sofia Wahlström
Vessela Stoyanova Dukova
Nichole Leigh Mosty
Fríða Bjarney Jónsdóttir
Danijela Zivojinovic
Birte Harksen
Guðlaug Stella (Gulla)
Umsjónarkennari námskeiðsins
Námskeið Content
Sýna meira
Þróunarhringurinn okkar og skrefin fjögur
Kennslulotur
Lota Content
0% Complete
0/6 Steps
Lota Content
0% Complete
0/6 Steps
Lota Content
0% Complete
0/3 Steps
Annað
Lota Content
0% Complete
0/4 Steps