Tungumál stærðfræðinnar fyrir yngsta stig
Námskeið í opnu Menntafléttunni
Lýsing
Þróunarhringur
Sækja um handleiðslu
Dagskrá
Á námskeiðinu er unnið með hvernig styðja má við þróun og uppbyggingu hugtakaskilnings í stærðfræði. Fjallað er um hvernig tungumálið er notað í stærðfræði og sjónum beint að muninum á orðanotkun í hverdagsmáli og tungumáli stærðfræðinnar. Áhersla er lögð á málskilning og hæfni til að beita hugtökum stærðfræðinnar í samskiptum og röksemdafærslu. Í aðalnámskrá grunnskóla (2013) er sérstök áhersla á stærðfræði og tungumál og gert er ráð fyrir að nemendur byggi upp hæfni til að tjá sig um stærðfræði.
Grunnhugmyndin er að efni námskeiðsins sé nýtt til að efla og styrkja námssamfélag stærðfræðikennara í gegnum lestur, umræður, tilraunir í kennslu ásamt vangaveltum og ígrundun um þróun stærðfræðikennslunnar í skólanum. Þátttaka í námskeiðinu felst í að hitta samkennara til að ræða og skipuleggja kennslu sem leiðir til máleflandi stærðfræðikennslu.
Við lok námskeiðs hafa þátttakendur kynnst:
- Lesefni, myndefni og hugmyndum að viðfangsefnum sem nýta má í máleflandi stærðfræðikennslu.
- Hvernig má styðja nemendur við að efla hæfni sína við að beita hugtökum stærðfræðinnar.
- Hvernig má styðja nemendur við að tjá sig á fjölbreyttan hátt bæði munnlega og skriflega um stærðfræðileg viðfangsefni.
- Hugmyndum um námssamfélag og hvernig kennarar geta unnið saman í starfsþróun sinni.
Námskeiðið byggir á sænskri fyrirmynd (Språk i matematik) frá Skolverket.
Mikilvægt er talið að þátttakendur íhugi og skrái hjá sér ígrundanir sínar um efni námskeiðsins og vinnu með nemendum. Skráningarform geta verið margskonar og skráning þarf ekki að taka langan tíma. Hér má sjá myndband (6 mín.) þar sem Unnur Gísladóttir kennari talar um gildi skráningar í kennslu og hér má finna texta sem fjallar um hvernig dagbókarskrif geta stutt við starfsþróun kennara.
Mælt er með að leiðtogar kynni sér kynningarsefni námskeiðsins þar sem m.a. er gerð grein fyrir hlutverki leiðtoga og vinnuferli Menntafléttunámskeiða (veggspjald).
Á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar er gert ráð fyrir að þátttakendur nýti þróunarhring í fjórum skrefum, sem styður við samræður um innleiðingu breyttra starfshátta í námi og kennslu. Skrefin fjögur eru:
Skref A: Þátttakendur undirbúa sig með lestri eða áhorfi – og undirbúa spurningar.
Skref B: Þátttakendur funda með teymi sínu og gera áætlun um útfærslu í starfi.
Skref C: Þátttakendur og teymi þeirra framkvæmir áætlun og skrá hjá sér athuganir.
Skref D: Þátttakendur funda aftur með teyminu og ræða hvernig til tókst og hvernig nemendur brugðust við.

Kennarahópar sem ætla að taka námskeið á vef Opnu Menntafléttunnar geta fengið handleiðslu eða ráðgjöf frá sérfræðingum. Handleiðslan felst í að sérfræðingur hittir kennarahópinn í sex klukkustundir á námskeiðstímanum. Samkomulag er um tímasetningar fundanna. Gert er ráð fyrir að ráðgjöfin fari fram á ZOOM.
Skólastjóri verður að sækja um ráðgjöfina fyrir hönd síns skóla. Kostnaður við handleiðslu á einu námskeiði er 100 þúsund krónur sem skólinn borgar áður en ráðgjöfin hefst.
Hægt er að semja um sérsniðna handleiðslu fyrir hópa með því að senda tölvupóst á Katrínu Valdísi sem hefur netfangið kava@hi.is.
Kennarar
Enginn skráður leiðbeinandi
Námskeið yfirlit
Sjá allt
Lota - Námsefni
0% Lokið
0/2 Skref
Lota - Námsefni
0% Lokið
0/5 Skref
Lota - Námsefni
0% Lokið
0/5 Skref
Lota - Námsefni
0% Lokið
0/5 Skref
Lota - Námsefni
0% Lokið
0/5 Skref