Málörvun með sögum og söng

Námskeið í Opnu Menntafléttunni

Staða
Ólokið
Verð
Opið námskeið
Hefja námskeið

Markmið námskeiðsins er að styðja við þátttakendur, þeirra námssamfélög og teymi í að efla málþroska barna í leikskólanum gegnum sögur og söng. Fjallað verður um hvernig barnabækur og tónlist megi nýta á skapandi og markvissan hátt til málörvunar barna. Leikurinn sem námsleið er í brennidepli og fjallað verður um leiðir til að efla málskilning og tjáningarfærni barna með því að nota sögur og söngtexta á skapandi hátt í samverustundum og sem efnivið í leik úti og inni. Aðlaga má viðfangsefni námskeiðsins þannig að það henti leikskólabörnum á öllum aldri.

Við lok námskeiðs geta þátttakendur:

  • leitt samtöl um breytta starfshætti í námssamfélögum og teymum í skólum og á vinnustöðum
  • átt samræður við börn um bækur sem stuðlað geta að eflingu alhliða málþroska þeirra
  • nýtt sögur og ljóð sem uppsprettu leikja, myndrænnar tjáningar og ritunar
  • tileinkað sér aðferðir til að efla frásagnarhæfni barna með endursögn og sköpun á nýjum sögum
  • unnið með þátttöku barna til að auka innlifun og dýpka skilning á sögum
  • tileinkað sér aðferðir til að efla frásagnarhæfni barna með endursögn og sköpun á nýjum sögum
  • unnið með orðaforða út frá ólíkum þörfum og aldri barna.

Fyrir hverja er námskeiðið og hvernig fer skráning fram?

Námskeiðið er fyrir leikskólakennara og starfsfólk leikskóla sem hefur áhuga á að þróa námssamfélag innan síns leikskóla með áherslu á málskilning, orðaforða og tjáningu, í gegnum sögur og söngva. Reynslan hefur sýnt fram á að farsælt sé að fleiri en einn þátttakandi sé frá hverjum leikskóla, en það er þó ekki skilyrði.

Eindregið er hvatt til þess að þátttakendur séu í samráði við sína stjórnendur um þátttöku á námskeiðinu. Með því eru stjórnendur meðvitaðir um og samábyrgir um að styðja við þróun námssamfélaga innan sinna stofnana. Hér er myndband sem lýsir mikilvægu hlutverki stjórnenda sem eiga þátttakendur á Menntafléttunámskeiðum og hér er texti sem lýsir þeim skilyrðum sem verða að vera til staðar í leikskóla þar sem námssamfélög kennara blómstra.

Hvar og hvernig fer námskeiðið fram?

Kennslan fer fram á vefnum á þeim tíma sem hentar þátttakendum sjálfum. Nám þátttakenda fer þó aðallega fram í leikskólum þeirra í samtali teyma um þróun náms og kennslu. Þátttakendur fá hagnýtar kveikjur sem þeir geta fléttað saman við daglegt starf, þeir leiða svo samtal á teymisfundum um hvernig gengur.

Umsjónaraðilar námskeiðs

Ingibjörg Á. Sveinsdóttir

Birte Harksen

Innskráning

Ekki með aðgang?

Skráðu þig, það kostar ekkert!

Hafa samband

Uppfæra notanda

Uppfæra notanda