Fjölbreytileiki og farsæld í skólastarfi
Menntafléttunámskeið
25. september
-
8. apríl
Lýsing
Þróunarhringur
Sækja um ráðgjöf
Dagskrá
Markmið námskeiðsins er að styðja við þátttakendur, þeirra námssamfélög og teymi við að auka þekkingu á fjölbreytileika í taugaþroska nemenda og hvernig hægt er að stuðla að nemendamiðaðri nálgun í skólastarfi.
Börn mæta í skólann með ólíkt veganesti og mismikla hæfni til að takast á við veruleikann sem mætir þeim þar. Á námskeiðinu verður sjónum beint að því hvernig mögulegt er að stuðla að farsæld allra barna í skólastarfi með því að skapa jafnvægi milli einstaklingsmiðaðs stuðnings og viðeigandi aðlögunar umhverfis. Skoðað verður hvernig hægt er að greina hvenær þörf fyrir aðlögun og stuðning er vegna sérstakra þarfa einstaklingsins og hvenær þörfin fyrir stuðning og aðlögun er vegna kerfislægra hindrana í samfélaginu.
Sameiginleg sýn og skilningur er forsenda þess að barni líði vel í skóla og að þörfum þess sé mætt. Á námskeiðinu verður farið í leiðir sem nýtast við að horfa undir yfirborðið og átta sig á rót vanda og koma auga á leiðir til lausna.
Á námskeiðinu læra þátttakendur að nýta þróunarhring í fjórum skrefum, sem styður við samtal um innleiðingu breyttra starfshátta í námi og kennslu. Skrefin fjögur eru stigin í skólanum, á milli kennslulota í Menntafléttunni:
- Skref A: Þátttakendur undirbúa sig með lestri eða áhorfi – og undirbúa spurningar
- Skref B: Þáttakendur funda með teyminu sínu og gera áætlun um útfærslu í starfi
- Skref C: Þátttakendur og teymið þeirra framkvæmir og skrá hjá sér athuganir
- Skref D: Þátttakendur funda aftur með teyminu og ræða hvernig til tókst.
Við lok námskeiðs geta þátttakendur:
- Leitt samtöl um breytta starfshætti í sínum námssamfélögum og teymum
- gert grein fyrir fjölbreytileika í taugaþroska og áhrifum á lærdómsferli nemenda.
- gert sér grein fyrir mikilvægi áhugahvatar fyrir námsferlið og virkni í námi.
- beitt og séð tilgang með hagnýtum verkfærum við aðlögun náms og umhverfis.
- nýtt aðferðir og aukið hæfni sína til að mæta ólíkum þörfum nemenda.
Fyrir hverja er námskeiðið og hvaða skilyrði þurfa að vera til staðar?
Námskeiðið er fyrir kennara, sérkennara og aðra fagmenntaða í stoðþjónustu grunn- og framhaldsskóla. Reynslan hefur sýnt fram á að farsælt sé að fleiri en einn þátttakandi sé frá hverjum skóla, en það er þó ekki skilyrði.
Eindregið er hvatt til þess að þátttakendur séu í samráði við sína stjórnendur um þátttöku á námskeiðinu. Með því eru stjórnendur meðvitaðir um og samábyrgir um að styðja við þróun námssamfélaga innan sinna stofnana. Hér er myndband sem lýsir mikilvægu hlutverki stjórnenda sem eiga þátttakendur á Menntafléttunámskeiðum og hér er texti sem lýsir þeim skilyrðum sem verða að vera til staðar í skóla þar sem námssamfélög blómstra.
Á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar er gert ráð fyrir að þátttakendur nýti þróunarhring í fjórum skrefum, sem styður við samræður um innleiðingu breyttra starfshátta í námi og kennslu. Skrefin fjögur eru:
Skref A: Þátttakendur undirbúa sig með lestri eða áhorfi – og undirbúa spurningar.
Skref B: Þátttakendur funda með teymi sínu og gera áætlun um útfærslu í starfi.
Skref C: Þátttakendur og teymi þeirra framkvæmir áætlun og skrá hjá sér athuganir.
Skref D: Þátttakendur funda aftur með teyminu og ræða hvernig til tókst og hvernig nemendur brugðust við.
Þátttakendum á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar stendur til boða að fá ráðgjöf um vinnuferli þróunarhringsins og eða inntak námskeiðanna. Ráðgjöfin er sniðin að þörfum hvers þátttakendahóps.
Ráðgjöfin er niðurgreidd af Menntafléttunni og er í höndum sérfræðinga á vegum hennar. Fyrsti tími í ráðgjöf er frír og mælt er með að þátttakendur nýti sér ráðgjöf á vegum Menntafléttunnar.
Stjórnendur sækja um ráðgjöf í gegnum skráningarform sem er aðgengilegt við hvert námskeið.
Hvar og hvernig fer námskeiðið fram?
Kennslan fer fram í sex lotum á ZOOM, sem eru þrjár klukkustundir að lengd, skólaárið 2023–2024. Nám þátttakenda fer þó aðallega fram í skólum þátttakenda í samtali teyma um þróun náms og kennslu. Þátttakendur fá hagnýtar kveikjur í lotunum sem þeir geta fléttað saman við daglegt starf, þeir leiða svo samtal á teymisfundum um hvernig gengur.
Í upphafi hverrar kennslulotu er farið yfir reynslu þátttakenda af því að nýta þróunarhringinn frá síðustu lotu.
Dag- og tímasetningar lota
2023
Mánudagur, 25. september kl. 14.15–17.00
Mánudagur, 30. október kl. 14.15–17.00
Mánudagur, 27. nóvember kl. 14.15–17.00
2024
Mánudagur, 15. janúar kl. 14.15–17.00
Mánudagur, 26. febrúar kl. 14.15–17.00
Mánudagur, 8. apríl kl. 14.15–17.00
Umsjónaraðilar námskeiðs
Jenný Gunnbjörnsdóttir
Sérfræðingur hjá MSHA og verkefnastjóri Menntafléttunnar
Kristín Björk Jóhannsdóttir
Ráðgjafi hjá skólaþjónustu og verkefnastjóri í farsældarteymi fjölskyldusviðs Árborgar
Námskeið yfirlit
Sjá allt
Kennslulotur
Lota - Námsefni
0% Lokið
0/8 Skref
Lota - Námsefni
0% Lokið
0/2 Skref