Fjölbreytileiki, fjölmenning og fjöltyngi

Námskeið í opnu Menntafléttunni

Staða
Ólokið
Verð
Opið námskeið
Hefja námskeið

Markmið námskeiðsins er að styðja við þátttakendur, þeirra námssamfélög og teymi í viðfangsefninu að koma til móts við fjölbreyttan nemendahóp, til að mynda hvað varðar móðurmál og bakgrunn. Efni námskeiðsins á að geta nýst þvert á faggreinar enda þurfa allir kennarar að geta tekist á við kennslu í hópum þar sem íslenska er ekki móðurmál allra nemenda, þeir hafa ólíkan menningarlegan bakgrunn og búa jafnvel yfir erfiðri reynslu. Það kann að vera áskorun að fjalla af nærfærni og virðingu um viðfangsefni sem snerta nemendur með ólíkum hætti og stýra bekkjarumræðum þar sem þessa er gætt. Á námskeiðinu deila þátttakendur reynslu og góðum ráðum, auk þess sem sérfræðingar í slíkum málum ræða við þátttakendur. Áhersla verður lögð á kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku en leiðarstef námskeiðsins er félagslegt réttlæti. Skráningarfrestur er til og með 1. september 2023

Við lok námskeiðs geta þátttakendur

  • Leitt samtöl um breytta starfshætti í námssamfélögum og teymum í skólum og á vinnustöðum.
  • Nýtt gagnreyndar aðferðir við kennslu nemenda með annað móðurmál en íslensku.
  • Beitt viðurkenndum leiðum við kennslu viðkvæmra málefna eða álitamála.
  • Beitt kennsluháttum sem efla alla nemendur jafnt, bæði námslega og félagslega.

Fyrir hverja er námskeiðið og hvaða skilyrði þurfa að vera til staðar?

Námskeiðið er fyrir kennara í á öllum stigum grunnskóla og í framhaldsskólum. Reynslan hefur sýnt fram á að farsælt sé að fleiri en einn þátttakandi sé frá hverjum skóla/stofnun, en það er þó ekki skilyrði.

Eindregið er hvatt til þess að þátttakendur séu í samráði við sína stjórnendur um þátttöku á námskeiðinu. Með því eru stjórnendur meðvitaðir um og samábyrgir um að styðja við þróun námssamfélaga innan sinna stofnana. Hér er myndband sem lýsir mikilvægu hlutverki stjórnenda sem eiga þátttakendur á Menntafléttunámskeiðum og hér er texti sem lýsir þeim skilyrðum sem verða að vera til staðar í skóla þar sem námssamfélög blómstra.

Hvar og hvernig fer námskeiðið fram?

Kennslan fer fram í sex lotum á ZOOM, sem eru þrjár klukkustundir að lengd, skólaárið 2023–2024. Nám þátttakenda fer þó aðallega fram í skólum þátttakenda í samtali teyma um þróun náms og kennslu. Þátttakendur fá hagnýtar kveikjur í lotunum sem þeir geta fléttað saman við daglegt starf, þeir leiða svo samtal á teymisfundum um hvernig gengur.

Í upphafi hverrar kennslulotu er farið yfir reynslu þátttakenda af því að nýta þróunarhringinn frá síðustu lotu.

Dag- og tímasetningar lota

2023
Þriðjudagur 12. september kl. 14:15-17:15
Þriðjudagur 10. október kl. 14:15-17:15
Miðvikudagur, 15. nóvember kl.14:15-17:15

2024
Fimmtudagur, 18. janúar kl. 14:15-17:15
Mánudagur, 4. mars kl. 14:15-17:15
Þriðjudagur, 16. apríl kl. 14:15-17:15

Umsjón og kennsla

Umsjón með námskeiðinu hafa Súsanna Margrét Gestsdóttir, lektor á Menntavísindasviði Háskóla Íslands og Renata Emilsson Pesková lektor á Menntavísindasviði HÍ , en auk þeirra annast kennslu Hermína Gunnþórsdóttir, prófessor við Háskólann á Akureyri, Susan Rafik Hama, lektor á Menntavísindasviði HÍ, Þorbjörg Halldórsdóttir, sérfræðingur á Menntamálastofnun, Fríða Bjarney Jónsdóttir deildarstýra Nýsköpunarmiðju menntamála hjá Reykjavíkurborg. auk sérfræðinga frá Miðju máls og læsis.

Kennarar

Renata Emilsson Peskova

Lektor á Menntavísindasviði HÍ

Þorbjörg Halldórsdóttir

Sérfræðingur á Menntamálastofnun

Susan Rafik Hama

Lektor á Menntasviði HÍ

Hermína Gunnþórsdóttir

Prófessor við HA

Súsanna M. Gestsdóttir

Lektor á Menntavísindasviði HÍ

Fríða Bjarney Jónsdóttir

Innskráning

Ekki með aðgang?

Skráðu þig, það kostar ekkert!

Hafa samband

Uppfæra notanda

Uppfæra notanda