Opna Menntafléttan

Í Opnu Menntafléttunni er að finna netnámskeið fyrir samstarfshópa á öllum skólastigum, starfsfólk á vettvangi frítímans og annað fagfólk sem starfar við menntun.

Þátttakendur mynda námssamfélag á sínum vinnustað. Hvert námssamfélag velur sér leiðtoga sem leiðir hópinn í gegnum námskeiðið með því að fylgja vinnuferli sem sett er upp í nokkra þróunarhringi.

Á vefsvæði hvers námskeiðs er að finna lesefni, myndefni og ýmis viðfangsefni til að ræða og vinna á vettvangi. Allir þátttakendur námssamfélagsins þurfa að skrá sig á viðkomandi námskeið til að fá aðgang að efni námskeiðsins.

Boðið er upp á ráðgjöf með hverju námskeiði ef óskað er. Sótt er um ráðgjöf á vefsvæði hvers námskeiðs fyrir sig.

Opna Menntafléttan býður starfsþróunarnámskeið fyrir kennara, starfsfólk á vettvangi frítímans og annað fagfólk sem starfar við menntun. Námskeiðin eru aðgengileg á opnum vef sem öll geta skráð sig inn á með nafni og netfangi.

Engin bein kennsla er á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar og því er mikilvægt að fylgja því vinnuferli sem gert er ráð fyrir í uppbyggingu námskeiðsins. Mælt er með að þátttakendur kynni sér vel leiðbeiningar á námskeiðsvef og horfi á kynningarmyndbönd sem þar er að finna. Á vefnum er meðal annars að finna leiðbeiningar um hvernig best er að skipuleggja tíma til samstarfs og sagt frá mikilvægi þess að fylgja skrefum þróunarhrings sem öll námskeið Opnu Menntafléttunnar byggja á.

Miðað er við að samstarfshópar taki þátt í námskeiðinu saman og nýti lesefni og myndefni í umræðum um eigið starf samkvæmt skrefum þróunrhringsins. Hverjum þróunarhring fylgja námsgögn, svo sem stuttar fræðigreinar, fyrirlestrar og myndbönd um inntak námskeiðsins og leiðir í kennslu. Einnig eru settar fram tillögur að verkefnum til að vinna með nemendum.

Gert er ráð fyrir að hver samstarfshópur velji sér leiðtoga til að leiða starfið á vettvangi. Á hverjum námskeiðsvef er að finna leiðsögn um vinnulag og gögn fyrir leiðtoga að styðjast við.

Hægt er að sækja um ráðgjöf og stuðning til sérfræðinga á vegum Menntafléttunnar á síðu hvers námskeiðs.

Á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar er gert ráð fyrir að þátttakendur nýti þróunarhring í fjórum skrefum, sem styður við samræður um þróun starfshátta. Skrefin fjögur eru:

Skref A: Þátttakendur lesa, horfa á myndbönd og ígrunda spurningar.
Skref B: Þátttakendur ræða saman um efnið og gera áætlun um útfærslu í starfi.
Skref C: Þátttakendur vinna samkvæmt áætlun og skrá hjá sér athuganir sínar.
Skref D:  Þátttakendur ígrunda vinnuna sem farið hefur fram á vettvangi. 

Námssamfélög eru umgjörð sem styður við nám og samstarf í teymum og greiðir fyrir sameiginlegri sýn. Í þeim þarf að ríkja traust og virðing og starfið í samstarfsteymum þarf að snúast bæði um undirbúning og starfið sjálft.

Mikilvægt er að í námssamfélögum sé forysta sem styður við samstarfsmenningu, tími og aðstæður tryggðar fyrir teymisfundi þar sem viðfangsefni eru rædd og þátttakendur fá tækifæri til að ígrunda og læra saman.

Gert er ráð fyrir að þátttakendur á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar leiði starf í námssamfélagi á heimavettvangi. Þau eru þar leiðtogar meðal jafningja, með stuðningi stjórnenda. Í þeirra hlut kemur að hrósa og hvetja, undirbúa fundi, stjórna þeim og skrifa fundargerðir.

Þátttakendum á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar stendur til boða að fá ráðgjöf og stuðning varðandi það hvernig best er að koma sér af stað við að vinna efni hvers námskeiðs. Jafnframt fá þeir kynningu á þeirri hugmyndafræði sem námskeið Menntafléttunnar byggja á.  

Ráðgjöfin verður sniðin að þörfum þeirra sem sækja um hana og verður án endurgjalds skólaárið 2024-2025.  

Mælt er með að þátttakendur á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar sæki um ráðgjöf til að koma sér af stað við að vinna efni námskeiðsins. Í kjölfarið fá þeir póst frá sérfræðingi Menntafléttunnar. 

Opna Menntafléttan býður starfsþróunarnámskeið fyrir kennara, starfsfólk á vettvangi frítímans og annað fagfólk sem starfar við menntun. Námskeiðin eru aðgengileg á opnum vef sem öll geta skráð sig inn á með nafni og netfangi.

Engin bein kennsla er á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar og því er mikilvægt að fylgja því vinnuferli sem gert er ráð fyrir í uppbyggingu námskeiðsins. Mælt er með að þátttakendur kynni sér vel leiðbeiningar á námskeiðsvef og horfi á kynningarmyndbönd sem þar er að finna. Á vefnum er meðal annars að finna leiðbeiningar um hvernig best er að skipuleggja tíma til samstarfs og sagt frá mikilvægi þess að fylgja skrefum þróunarhrings sem öll námskeið Opnu Menntafléttunnar byggja á.

Miðað er við að samstarfshópar taki þátt í námskeiðinu saman og nýti lesefni og myndefni í umræðum um eigið starf samkvæmt skrefum þróunrhringsins. Hverjum þróunarhring fylgja námsgögn, svo sem stuttar fræðigreinar, fyrirlestrar og myndbönd um inntak námskeiðsins og leiðir í kennslu. Einnig eru settar fram tillögur að verkefnum til að vinna með nemendum.

Gert er ráð fyrir að hver samstarfshópur velji sér leiðtoga til að leiða starfið á vettvangi. Á hverjum námskeiðsvef er að finna leiðsögn um vinnulag og gögn fyrir leiðtoga að styðjast við.

Hægt er að sækja um ráðgjöf og stuðning til sérfræðinga á vegum Menntafléttunnar á síðu hvers námskeiðs.

Opna Menntafléttan býður starfsþróunarnámskeið fyrir kennara, starfsfólk á vettvangi frítímans og annað fagfólk sem starfar við menntun. Námskeiðin eru aðgengileg á opnum vef sem öll geta skráð sig inn á með nafni og netfangi.

Engin bein kennsla er á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar og því er mikilvægt að fylgja því vinnuferli sem gert er ráð fyrir í uppbyggingu námskeiðsins. Mælt er með að þátttakendur kynni sér vel leiðbeiningar á námskeiðsvef og horfi á kynningarmyndbönd sem þar er að finna. Á vefnum er meðal annars að finna leiðbeiningar um hvernig best er að skipuleggja tíma til samstarfs og sagt frá mikilvægi þess að fylgja skrefum þróunarhrings sem öll námskeið Opnu Menntafléttunnar byggja á.

Miðað er við að samstarfshópar taki þátt í námskeiðinu saman og nýti lesefni og myndefni í umræðum um eigið starf samkvæmt skrefum þróunrhringsins. Hverjum þróunarhring fylgja námsgögn, svo sem stuttar fræðigreinar, fyrirlestrar og myndbönd um inntak námskeiðsins og leiðir í kennslu. Einnig eru settar fram tillögur að verkefnum til að vinna með nemendum.

Gert er ráð fyrir að hver samstarfshópur velji sér leiðtoga til að leiða starfið á vettvangi. Á hverjum námskeiðsvef er að finna leiðsögn um vinnulag og gögn fyrir leiðtoga að styðjast við.

Hægt er að sækja um ráðgjöf og stuðning til sérfræðinga á vegum Menntafléttunnar á síðu hvers námskeiðs.

Á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar er gert ráð fyrir að þátttakendur nýti þróunarhring í fjórum skrefum, sem styður við samræður um þróun starfshátta. Skrefin fjögur eru:

Skref A: Þátttakendur lesa, horfa á myndbönd og ígrunda spurningar.
Skref B: Þátttakendur ræða saman um efnið og gera áætlun um útfærslu í starfi.
Skref C: Þátttakendur vinna samkvæmt áætlun og skrá hjá sér athuganir sínar.
Skref D:  Þátttakendur ígrunda vinnuna sem farið hefur fram á vettvangi. 

Menntafléttunámskeiðin eru starfsþróunarnámskeið fyrir starfandi kennara og starfsfólk á vettvangi frítímans. Þau byggja á samstarfi samstarfsfólks á vettvangi yfir ákveðið tímabil eða eitt skólaár. Yfirleitt er einn kennari eða starfsmaður fenginn til að halda utan um samstarfið og er þá leiðtogi meðal jafningja. Talað er um að kennarar séu að efla námssamfélag sitt þegar þeir vinna saman í teymum með það að markmiði að efla sig sem fagmenn, nemendum sínum til hagsbóta. Það sama á við um starfsfólk á vettvangi frítímans.

Í myndböndunum er annars vegar sagt frá hlutverki leiðtoga og vinnuferli Menntafléttunámskeiða og hins vegar er sagt frá hvað einkennir námssamfélög.

Hlutverk leiðtoga

Guðríður Sveinsdóttir kennari við Giljaskóla á Akureyri hefur verið leiðtogi á Menntafléttunámskeiði. Í myndbandinu segir hún hvað felst í því hlutverki og hvað leiðtogi þarf sérstaklega að hafa í huga þegar unnið er eftir þróunarhring Menntafléttunnar við að efla námssamfélag kennara í skólanum.

Námssamfélag

Birna María Svanbjörnsdóttir lektor við Háskólann á Akureyri er einn helsti fræðimaður okkar um námssamfélög. Í myndbandinu skilgreinir hún hugtakið námssamfélag og hvað þarf að vera til staðar til að þróa námssamfélög í skólum.

Hlutverk stjórnenda er stórt þegar kemur að starfsþróun. Til að námssamfélög blómstri þurfa stjórnendur að setja markmið og móta væntingar um gæði náms, kennslu og starfs. Þeir þurfa einnig að:

  • tryggja stuðning og tíma til ígrundunar og samræðu
  • hvetjasýna áhuga og taka þátt í starfsþróun síns fólks
  • tryggja aðgang að bestu mögulegu þekkingu og góðum verkfærum.

Kennslufræðileg forysta stjórnenda hefur mikil áhrif á gæði náms, kennslu og starfshátta. Það er stjórnenda að tryggja að starfsþróun:

  • beinist að tengslum kennslu og náms nemenda
  • þjóni þörfum bæði kennara og nemenda
  • miði að mörgum námsaðferðum og fjölbreyttum tækifærum til náms.
    (Robinson, 2011).
Námskeið í boði
Dropdown skólastig
Dropdown

Tungumál stærðfræðinnar fyrir framhaldsskóla

Framhaldsskóli

Stærðfræðin í leik barna

Leikskóli

Tungumál stærðfræðinnar fyrir miðstig

Grunnskóli - Miðstig

Tungumál stærðfræðinnar fyrir unglingastig

Grunnskóli - Unglingastig

Lestrarsamfélagið: Áhugahvöt og áhrifavaldar

Grunnskóli - Öll stig

Náttúrufræði til framtíðar – samþætting með öðrum námsgreinum

Grunnskóli - Mið - og Unglingastig

Greindu betur- samþætting stærðfræði, tölfræði og samfélagsgreina

Framhaldsskóli og unglingastig grunnskóla

Málörvun með sögum og söng

Leikskóli

Tungumál stærðfræðinnar fyrir yngsta stig

Grunnskóli - Yngsta stig

Stærðfræðinám og upplýsingatækni á yngsta stigi

Grunnskóli - Yngsta stig

Stærðfræðinám og upplýsingatækni á miðstigi

Grunnskóli - Miðstig

Stærðfræðinám og upplýsingatækni á unglingastigi

Grunnskóli - Unglingastig

Innskráning

Ekki með aðgang?

Skráðu þig, það kostar ekkert!

Hafa samband

Uppfæra notanda

Uppfæra notanda