Spurningar og umræðupunktar í 6. lotu

Hér eru spurningar og umræðupunktar sem tengjast efni lotunnar. Þátttakendur og mentorar hittast á litlu fundunum og ræða um spurningar fyrir fyrirlestur (skref B) og spurningar eftir fyrirlesturinn (skref C).   Spurningar fyrir fyrirlestur:
    • Hvernig er unnið með samskipti við börn í leikskólanum mínum?
      • Á íslensku – á heimamálum barnanna?
    • Hvenær upplifa börn að þau séu hluti af barnahópnum?
    • Hvað gerum við þegar börn eru skilin útundan?
    • Hvað er trú á eigin getu?
    • Hvernig veitum við börnum endurgjöf (hrósum) og af hverju?
    • Hvenær fá börn að velja?
    • Hvernig geta börn hjálpað til í leikskólanum?
Hér getur verið gott að lesa: Spurningar og umræður eftir fyrirlestur: Nýjar spurningar (léttari spurningar) eftir fyrirlestur – Skref C)
    • Hvað er hægt að gera til að efla áhuga barna á samskiptum? Á Íslensku?
    • Hvernig getum við sýnt áhuga á heimatungumálum barnanna?
    • Hvernig getum við gefið börnum tækifæri til taka meiri þátt í leik og starfi í leikskólanum okkar?
    • Hvað getum við gert til að styðja börnin við að vinna betur saman?
    • Hvernig getum við notað bækur og tónlist til að vekja áhuga barna á orðum og tungumáli?
    • Hvernig getum við átt í samskiptum við börn sem tala ekki sama tungumál og við?
    • Hvernig getum við hrósað börnum og gefið þeim skilaboð um að þau geti og kunni?
Gamlar spurningar (erfiðari spurningar – valfrjálst – Skref C)
    • Hvernig hafa samskipti áhrif á málþroska barna í íslensku og heimatungumálum?
    • Hvaða ólíku aðferðir er hægt að nota til að virkja börn í samskiptum?
    • Hvaða leiðir er hægt að fara til að börn séu tilbúin að bjóða öðrum börnum að vera með í leiknum?
    • Hvernig getum við stutt börn í að trúa á sjálf sig?
    • Hvenær sjáum við virka þátttöku allra barna í leikskólastarfi?
    • Hvernig birtist lýðræði í leikskólanum okkar?

Innskráning

Ekki með aðgang?

Skráðu þig, það kostar ekkert!

Hafa samband

Uppfæra notanda

Uppfæra notanda