Stærðfræðin í leik barna
Námskeið í Opnu Menntafléttunni
Lýsing
Þróunarhringur
Sækja um ráðgjöf
Dagskrá
Stærðfræðin í leik barna
Námskeiðið Stærðfræðin í leik barna er fyrsta námskeiðið af þremur um stærðfræði í leikskóla. Síðan koma námskeiðin Stærðfræðin í umhverfi leikskólabarna og Magnskilningur leikskólabarna.
Helsta markmið námskeiðsins er að efla skilning starfsfólks í leikskóla á hvað geta talist stærðfræðileg viðfangsefni leikskólabarna. Eftir námskeiðið er þess vænst að þátttakendur verði hæfari til að skipuleggja, undirbúa og fylgja eftir vinnu barna í leikskólanum með það að markmiði að hæfni barnanna til að taka virkan þátt í stærðfræðilegum viðfangsefnum aukist.
Þátttakendur kynnast sex grunnþáttum um þróun stærðfræðiskilnings sem Alan J. Bishop setur fram og í þessu námskeiði kynnast þau sérstaklega þáttunum leikur og útskýringar. Þar að auki er farið vel í mikilvægi skráninga og hvernig þær styðja við áframhaldandi stærðfræðinám barna í leikskóla.
Grunnhugmyndin er að efni námskeiðsins sé nýtt til að efla og styrkja námssamfélag leikskólakennara og starfsfólks leikskóla í gegnum lestur, vinnu með börnum og umræður um stærðfræðinám barnanna. Þátttaka í námskeiðinu felst í að hitta samstarfsfólk til að ræða og skipuleggja vinnu barna með áherslu á stærðfræðileg viðfangsefni.
Kennslufræðileg áhersla í þróunarhring 1-4 beinist að börnunum. Aðaláherslan er á að nálgast stærðfræðileg viðfangsefni í gegnum leik og útskýringar.
Við lok námskeiðs hafa þátttakendur kynnst:
- Leiðum til að taka þátt í námssamfélagi jafningja í eigin leikskóla með samtali, endurgjöf og ígrundun um breytta starfshætti
- Lesefni og hugmyndum að viðfangsefnum tengdum stærðfræðinámi leikskólabarna
- Hvernig hægt er að vinna að skráningum á vinnu barna á fjölbreyttan hátt
- Hvernig skoða má leik og útskýringar barna með stærðfræðigleraugum
Mikilvægt er talið að þátttakendur íhugi og skrái hjá sér ígrundanir sínar um efni námskeiðsins og vinnu með nemendum. Skráningarform geta verið margskonar og skráning þarf ekki að taka langan tíma. Hér má sjá myndband um gildi skráningar í kennslu og hér má finna texta sem fjallar um hvernig dagbókarskrif geta stutt við starfsþróun kennara.
Mælt er með að leiðtogar kynni sér kynningarsefni námskeiðsins þar sem m.a. er gerð grein fyrir hlutverki leiðtoga og vinnuferli Menntafléttunámskeiða.
Námskeiðið byggir á sænskri fyrirmynd (Förskolans matematik) frá Skolverket en hefur verið þýtt og staðfært af stærðfræðiteymi Menntafléttunnar. Skólar geta sótt um ráðgjöf og stuðning við innleiðingu viðfangsefna námskeiðsins. Ráðgjöfina annast stærðfræðiteymi Menntafléttu.
Á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar er gert ráð fyrir að þátttakendur nýti þróunarhring í fjórum skrefum, sem styður við samræður um innleiðingu breyttra starfshátta í námi og kennslu. Skrefin fjögur eru:
Skref A: Þátttakendur undirbúa sig með lestri eða áhorfi – og undirbúa spurningar.
Skref B: Þátttakendur funda með teymi sínu og gera áætlun um útfærslu í starfi.
Skref C: Þátttakendur og teymi þeirra framkvæmir áætlun og skrá hjá sér athuganir.
Skref D: Þátttakendur funda aftur með teyminu og ræða hvernig til tókst og hvernig nemendur brugðust við.
Þátttakendum á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar stendur til boða að fá ráðgjöf og stuðning um hvernig best er að koma sér af stað við að vinna efni hvers námskeiðs. Jafnframt fá þeir kynningu á þeirri hugmyndafræði sem námskeið Menntafléttunnar byggja á.
Ráðgjöfin verður sniðin að þörfum þeirra sem sækja um hana og verður án endurgjalds skólaárið 2024-2025.
Sótt er um ráðgjöf á vefsvæði hvers námskeiðs fyrir sig.
Mælt er með að þátttakendur á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar sæki um ráðgjöf til að koma sér af stað við að vinna efni námskeiðsins.
Í kjölfarið fá þeir póst frá sérfræðingi Menntafléttunnar.
Umsjónaraðilar námskeiðs
Stærðfræðiteymi Menntafléttu
Námskeið Content
Sýna meira
Undirbúningur
Lota Content
0% Complete
0/5 Steps
Yfirlit námskeiðs
Námskeiðsefni
Lota Content
0% Complete
0/4 Steps
Námskeiðsgögn
1 Viðfangsefni
Expand