Þróunarhringurinn og skrefin fjögur
Þróunarhringurinn og skrefin fjögur
- Þróunarhringurinn er meginverkfæri þátttakenda á námskeiðum Menntafléttunnar.
- Í hverri lotu styðjast þátttakendur við þessi fjögur skref þróunarhringsins með mentornum sínum og samstarfsfólki.
- Gera má ráð fyrir að skrefin fjögur séu stigin á um það bil fjórum vikum.
- Mælt er með að fara eftir skrefum samkvæmt vikuskipulagi (sjá hér neðar)
Skref A – Undirbúningur hvers og eins
Þátttakendur lesa um efni lotunnar sem er að finna á kennsluvefnum. Þýða og læra hugtökin, lesa ítarefni og horfa á myndbönd. Mentorar skoða efni lotunnar og fara yfir helstu áherslur skrefanna.
Mentorar í samstarfi við þátttakendur leita leiða til að gera hugtök og þemu lotunnar sýnileg í leikskólanum fyrir þátttakendur og starfsfólk leikskólans. Hér má fara skapandi leiðir. Þátttakendur:
- Lesa um lotuna.
- Þýða hugtökin og skrá í vinnubók eða tölvu.
- Fara í Tungumálabankann og taka út orðaforða og málnotkun lotunnar.
Skref B – Með mentor: Undirbúningur fyrir fyrirlestur gestakennara
Þátttakendur og mentorar ræða saman um efni lotunnar og tengja við starfið í leikskólanum.
- Ræða saman um hugtökin.
- Ræða spurningar og kveikjur frá gestakennara (spurningar fyrir fyrirlestur).
- Skoða hvernig efni lotunnar tengist starfinu í leikskólanum?
Á milli skrefs B og C munu þátttakendur mæta í lotu og hlusta á fyrirlestur gestakennara.
Skref C – Með mentor: Samræður eftir fyrirlestur og verkefnavinna
Þátttakendur og mentorar ræða um fyrirlesturinn og tengja við starfið í leikskólanum. Gestakennarar leggja verkefni fyrir þátttakendur sem þátttakendur með aðstoð mentora vinna með börnunum.
- Ræða saman um fyrirlesturinn.
- Hvernig gekk að skilja fyrirlesturinn? Lærðir þú eitthvað nýtt?
- Hvernig var að tala saman í samskiptaherbergjum (Breakout rooms)?
- Ræða spurningar og umræðupunkta frá gestakennara (spurningar eftir fyrirlestur).
- Vinna verkefni með börnunum í tengslum við efni lotunnar. Gestakennarar leggja fram verkefni, mentorar og þátttakendur finna leiðir til að aðlaga verkefnin að aldri og þroska barnanna. Þátttakendur segja frá verkefninu í íslenskutíma í skrefi D.
Skref D – Með mentor: Úrvinnsla og Íslenskan mín
Stjórnendur og mentorar taki þátt í, og hvetji allt starfsfólk til að eiga samtal og samskipti um efni lotunnar, hvar sem tækifæri gefst. Þátttakendur ræða um hugtök, spurningar og verkefni lotunnar með mentor og samstarfsfólki.
- Þátttakendur mæta í íslenskutíma og vinna íslenskuverkefni; Íslenskan mín.
- Við lok hverrar lotu mælum við með að þátttakendur og mentorar ræði saman um íslenskunámið í lotunni. Hér eru dæmi um spurningar sem getur verið gott að styðjast við:
-
- Hvað lærðir þú í lotunni (orð, hugtök, setningar)
- Hvernig gekk að læra ný hugtök?
- Hvernig gekk að tala íslensku?
- Hvað langar þig að læra næst?
- Við lok hverrar lotu er farsælt að mentor undirbúi ca 15 mínútna langa samverustund eða óformlegan spjallfund með samstarfsfólki þar sem rætt er um efni lotunnar. Þar fá þátttakendur tækifæri til að æfa nýja þekkingu, segja frá því sem stendur upp úr og fá hvatningu frá samstarfsfólki og mentorum.
Í hverri lotu er viðfangsefnið Íslenskan mín fyrir þátttakendur. Þar er að finna íslenskuefni og verkefni sem tengjast lotunum og unnið er með í íslenskutímunum. Mentorum er auðvitað velkomið að skoða efnið. Íslenskutíminn er í lok lotunnar, þar eru orðaforði og málnotkun lotunnar æfð og sett í samhengi við málfræðilegar formdeildir í íslensku (kyn, fornöfn, fall, persóna, tala, tíð).
Í íslenskutímanum eiga þátttakendur að segja frá verkefni sem þeir völdu til að vinna með börnunum og er í tengslum við þema hverrar lotu. Ef þátttakendur hafa náð að vinna verkefnið með börnunum segja þeir frá hvernig gekk að vinna verkefnið, hvað gekk vel og hvað gekk ekki nógu vel.
“Ég vil koma framfæri að mínir skjólstæðingar eru himinlifandi með þetta námskeið og við höfum fengið mikið út úr því að hittast og ræða námskeiðið. Vonandi verður áframhald á þessu námskeiði”. Skólastjóri á Menntafléttunámskeiði veturinn 2022-2023.