Greindu betur- samþætting stærðfræði, tölfræði og samfélagsgreina
Námskeið í Opnu Menntafléttunni
Lýsing
Þróunarhringur
Sækja um ráðgjöf
Dagskrá
Markmið námskeiðsins er að styðja við þátttakendur, námssamfélög þeirra og teymi í nýtingu gagna og gagnagrunna í kennslu ólíkra greina. Rauður þráður í nálgun námskeiðsins er að vinna með lykilhæfniþættina; tjáningu og miðlun, gagnrýna hugsun og nýtingu miðla og upplýsinga.
Í hagtölum og opinberum gagnagrunnum er mikið magn tölulegra upplýsinga um samfélagið sem nýta má í skólastarfi. Miðlun og notkun hagtalna og hlutlausra tölfræðiupplýsinga stuðla að upplýstri þjóðfélagsumræðu, gagnrýnni hugsun og eru grundvöllur lýðræðislegra ákvarðana. Hagtölur, gögn og gagnagrunnar eru vannýtt verkfæri í námi og kennslu, verkfæri sem bjóða upp á fjölbreytta nálgun í ólíkum faggreinum.
Á námskeiðinu verður fjallað um helstu hugtök sem tengjast nýtingu gagna og gagnaúrvinnslu, möguleika við nýtingu á opinberum gögnum og helstu gagnagrunna. Viðfangsefni námskeiðsins snerta kennslu í samfélagsfræði, félagsgreinum, stærðfræði, tölfræði, hagfræði sem og náttúrufræðigreinum. Þátttakendur kynnast verkfærum, nálgun og leiðum til að þróa eigin kennslu með notkun opinberra sem og alþjóðlegra hagtalna og gagnagrunna.
Við lok námskeiðs geta þátttakendur
- Leitt samtöl um breytta starfshætti í námssamfélögum og teymum um viðfangsefni námskeiðsins.
- Metið ólík gögn og gagnagrunna og ýtt undir forvitni nemenda um notkun þeirra.
- Nýtt tölfræði og opinberar hagtölur fyrir nýsköpun í námi og kennslu
- Beitt fjölbreyttum og hagnýtum verkfærum til að efla tjáningu, miðlun og upplýsingalæsi nemenda
- Skoðað með gagnrýnu hugarfari með nemendum sínum hvaða hlutverki gögn þjóna á ólíkum sviðum samfélagsins
- Þekkt og fjallað um gæði rannsókna og hvernig má nýta- og misnota rannsóknarniðurstöður
Á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar er gert ráð fyrir að þátttakendur nýti þróunarhring í fjórum skrefum, sem styður við samræður um innleiðingu breyttra starfshátta í námi og kennslu. Skrefin fjögur eru:
Skref A: Þátttakendur undirbúa sig með lestri eða áhorfi – og undirbúa spurningar.
Skref B: Þátttakendur funda með teymi sínu og gera áætlun um útfærslu í starfi.
Skref C: Þátttakendur og teymi þeirra framkvæmir áætlun og skrá hjá sér athuganir.
Skref D: Þátttakendur funda aftur með teyminu og ræða hvernig til tókst og hvernig nemendur brugðust við.
Þátttakendum á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar stendur til boða að fá ráðgjöf og stuðning um hvernig best er að koma sér af stað við að vinna efni hvers námskeiðs. Jafnframt fá þeir kynningu á þeirri hugmyndafræði sem námskeið Menntafléttunnar byggja á.
Ráðgjöfin verður sniðin að þörfum þeirra sem sækja um hana og verður án endurgjalds skólaárið 2024-2025.
Sótt er um ráðgjöf á vefsvæði hvers námskeiðs fyrir sig.
Mælt er með að þátttakendur á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar sæki um ráðgjöf til að koma sér af stað við að vinna efni námskeiðsins.
Í kjölfarið fá þeir póst frá sérfræðingi Menntafléttunnar.
Umsjónaraðilar námskeiðs
Víðir Þórarinsson
stærðfræðikennari í Kársnesskóla
Anna Hera Björnsdóttir
Stærðfræðikennari í Versló
Námskeið Content
Sýna meira
Undirbúningur
Lota Content
0% Complete
0/5 Steps
Námskeiðsefni
Lota Content
0% Complete
0/5 Steps
Lota Content
0% Complete
0/1 Steps