Stærðfræðinám og upplýsingatækni á yngsta stigi

Námskeið í Opnu Menntafléttunni

Staða
Ekki skráð/ur
Price
Free
Skráning

Stærðfræðinám og upplýsingatækni á yngsta stigi

Á námskeiðinu verður sjónum sérstaklega beint að notkun og möguleikum upplýsingatækni fyrir stærðfræðikennara á yngsta stigi. Fjallað verður um hvernig hægt er að nota greiningalykla til að meta forrit í stærðfræðinámi og kynntar verða hugmyndir að forritum til að gera stærðfræðikennsluna myndrænni og fjölbreyttari. Auk þess verða skoðuð verkfæri sem nemendur geta notað í námi sínu, bæði sem námstæki og til að setja fram niðurstöður sínar.

Grunnhugmyndin er að efni námskeiðsins sé nýtt til að efla og styrkja námssamfélag stærðfræðikennara í gegnum lestur, umræður, tilraunir í kennslu og vangaveltur og ígrundun um þróun stærðfræðikennslunnar í skólanum. Þátttaka í námskeiðinu felst í að hitta samkennara til að ræða og skipuleggja kennslu sem leiðir til að nýta upplýsingatækni í stærðfræðikennslu.

Við lok námskeiðs hafa þátttakendur kynnst:

    • Leiðum til að taka þátt í námssamfélagi jafningja í eigin skóla með samtali, endurgjöf og ígrundun um breytta starfshætti

    • Lesefni og hugmyndum að viðfangsefnum tengdum upplýsingatækni í stærðfræði með samkennurum og nemendum

    • Greiningarlyklum til að meta forrit í stærðfræðinámi

    • Hvernig styðja má nemendur í að nýta verkfæri upplýsingatækni í námi sínu, sem námstæki og til að setja fram niðurstöður sínar

Mikilvægt er talið að þátttakendur íhugi og skrái hjá sér ígrundanir sínar um efni námskeiðsins og vinnu með nemendum.  Skráningarform geta verið margskonar og skráning þarf ekki að taka langan tíma. Hér má sjá myndband (6 mínútur) þar sem Unnur Gísladóttir talar um gildi skráningar í kennslu og hér má finna texta sem fjallar um hvernig dagbókarskrif geta stutt við starfsþróun kennara.

Námskeiðið byggir á sænskri fyrirmynd (Matematikundervisning med digitala verktyg I) frá Skolverket. Í tímaritinu Flatarmál er fjallað um reynslu íslenskra kennara af fyrstu Menntafléttunámskeiðum.

Skólar geta sótt um ráðgjöf og stuðning við innleiðingu viðfangsefna námskeiðsins. Ráðgjöfina annast stærðfræðiteymi Menntafléttunnar.

Umsjónaraðilar námskeiðs

Stærðfræðiteymi Menntafléttu

Námskeið Content

Sýna meira
Undirbúningur
Yfirlit námskeiðs
Námskeiðsefni
Lota Content
0% Complete 0/1 Steps

Innskráning

Ekki með aðgang?

Skráðu þig, það kostar ekkert!

Hafa samband

Uppfæra notanda

Uppfæra notanda