Náttúrufræði til framtíðar – samþætting með öðrum námsgreinum
Námskeið í Opnu Menntafléttunni
Lýsing
Þróunarhringur
Sækja um ráðgjöf
Dagskrá
„Náttúrufræðin er lífið allt, hún kemur alls staðar við sögu í daglegu lífi; hvað þú borðar, hvernig þú hreyfir þig á milli staða og nýtir það sem þú hefur. Þess vegna er svo skemmtilegt að samþætta hana öðrum námsgreinum. Eiginlega nauðsynlegt.“ Ólöf Ása og Óðinn, kennarar námskeiðsins og kennarar í Hrafnagilsskóla.
Markmið námskeiðsins er að styðja þátttakendur við að skipuleggja og útfæra kennslu með áherslu á samþættingu náttúrufræði með öðrum námsgreinum. Námskeiðið er ætlað kennurum sem hafa hug á að tengja saman vinnu með ólíkar námsgreinar og setja sérstaka áherslu á náttúrugreinar og með því opna á möguleika þess að vinna nýja nálgun í námi nemenda. Einnig er námskeiðinu ætlað að styrkja þátttakendur í teymiskennslu og samvinnu með hliðsjón af samþættingu. Fjallað verður um viðfangsefni hverrar lotu út frá samþættu verkefni sem kennarar námskeiðsins hafa þegar nýtt í kennslu.
Við lok námskeiðs geta þátttakendur:
- Leitt samtöl um breytta starfshætti í námssamfélögum og teymum í skólum og á vinnustöðum.
- Nýtt fjölbreytt verkefni sem auka virkni og valdefla nemendur.
- Nýtt sér hagnýtar leiðir til þess að samþætta náttúrufræði við aðrar námsgreinar.
- Komið auga á kosti teymiskennslu og hafa lært leiðir að farsælli samvinnu.
Á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar er gert ráð fyrir að þátttakendur nýti þróunarhring í fjórum skrefum, sem styður við samræður um innleiðingu breyttra starfshátta í námi og kennslu. Skrefin fjögur eru:
Skref A: Þátttakendur undirbúa sig með lestri eða áhorfi – og undirbúa spurningar.
Skref B: Þátttakendur funda með teymi sínu og gera áætlun um útfærslu í starfi.
Skref C: Þátttakendur og teymi þeirra framkvæmir áætlun og skrá hjá sér athuganir.
Skref D: Þátttakendur funda aftur með teyminu og ræða hvernig til tókst og hvernig nemendur brugðust við.
Þátttakendum á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar stendur til boða að fá ráðgjöf og stuðning um hvernig best er að koma sér af stað við að vinna efni hvers námskeiðs. Jafnframt fá þeir kynningu á þeirri hugmyndafræði sem námskeið Menntafléttunnar byggja á.
Ráðgjöfin verður sniðin að þörfum þeirra sem sækja um hana og verður án endurgjalds skólaárið 2024-2025.
Sótt er um ráðgjöf á vefsvæði hvers námskeiðs fyrir sig.
Mælt er með að þátttakendur á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar sæki um ráðgjöf til að koma sér af stað við að vinna efni námskeiðsins.
Í kjölfarið fá þeir póst frá sérfræðingi Menntafléttunnar.
Umsjónaraðilar námskeiðs
Ólöf Ása Benediktsdóttir
Grunnskólakennari
Óðinn Ásgeirsson
Grunnskólakennari
Brynja Stefánsdóttir
Grunnskólakennari
Námskeið Content
Sýna meira
Undirbúningur
Lota Content
0% Complete
0/5 Steps
Námskeiðsefni
Lota Content
0% Complete
0/5 Steps
Lota Content
0% Complete
0/5 Steps
Lota Content
0% Complete
0/5 Steps
Lota Content
0% Complete
0/5 Steps
Lota Content
0% Complete
0/4 Steps