Málörvun með sögum og söng
Námskeið í Opnu Menntafléttunni
Lýsing
Þróunarhringur
Sækja um ráðgjöf
Dagskrá
Markmið námskeiðsins er að styðja við þátttakendur, þeirra námssamfélög og teymi í að efla málþroska barna í leikskólanum gegnum sögur og söng. Fjallað verður um hvernig barnabækur og tónlist megi nýta á skapandi og markvissan hátt til málörvunar barna. Leikurinn sem námsleið er í brennidepli og fjallað verður um leiðir til að efla málskilning og tjáningarfærni barna með því að nota sögur og söngtexta á skapandi hátt í samverustundum og sem efnivið í leik úti og inni. Aðlaga má viðfangsefni námskeiðsins þannig að það henti leikskólabörnum á öllum aldri.
Við lok námskeiðs geta þátttakendur:
- leitt samtöl um breytta starfshætti í námssamfélögum og teymum í skólum og á vinnustöðum
- átt samræður við börn um bækur sem stuðlað geta að eflingu alhliða málþroska þeirra
- nýtt sögur og ljóð sem uppsprettu leikja, myndrænnar tjáningar og ritunar
- tileinkað sér aðferðir til að efla frásagnarhæfni barna með endursögn og sköpun á nýjum sögum
- unnið með þátttöku barna til að auka innlifun og dýpka skilning á sögum
- tileinkað sér aðferðir til að efla frásagnarhæfni barna með endursögn og sköpun á nýjum sögum
- unnið með orðaforða út frá ólíkum þörfum og aldri barna.
Fyrir hverja er námskeiðið og hvernig fer skráning fram?
Námskeiðið er fyrir leikskólakennara og starfsfólk leikskóla sem hefur áhuga á að þróa námssamfélag innan síns leikskóla með áherslu á málskilning, orðaforða og tjáningu, í gegnum sögur og söngva. Reynslan hefur sýnt fram á að farsælt sé að fleiri en einn þátttakandi sé frá hverjum leikskóla, en það er þó ekki skilyrði.
Eindregið er hvatt til þess að þátttakendur séu í samráði við sína stjórnendur um þátttöku á námskeiðinu. Með því eru stjórnendur meðvitaðir um og samábyrgir um að styðja við þróun námssamfélaga innan sinna stofnana. Hér er myndband sem lýsir mikilvægu hlutverki stjórnenda sem eiga þátttakendur á Menntafléttunámskeiðum og hér er texti sem lýsir þeim skilyrðum sem verða að vera til staðar í leikskóla þar sem námssamfélög kennara blómstra.
Hvar og hvernig fer námskeiðið fram?
Kennslan fer fram á vefnum á þeim tíma sem hentar þátttakendum sjálfum. Nám þátttakenda fer þó aðallega fram í leikskólum þeirra í samtali teyma um þróun náms og kennslu. Þátttakendur fá hagnýtar kveikjur sem þeir geta fléttað saman við daglegt starf, þeir leiða svo samtal á teymisfundum um hvernig gengur.
Á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar er gert ráð fyrir að þátttakendur nýti þróunarhring í fjórum skrefum, sem styður við samræður um innleiðingu breyttra starfshátta í námi og kennslu. Skrefin fjögur eru:
Skref A: Þátttakendur undirbúa sig með lestri eða áhorfi – og undirbúa spurningar.
Skref B: Þátttakendur funda með teymi sínu og gera áætlun um útfærslu í starfi.
Skref C: Þátttakendur og teymi þeirra framkvæmir áætlun og skrá hjá sér athuganir.
Skref D: Þátttakendur funda aftur með teyminu og ræða hvernig til tókst og hvernig nemendur brugðust við.
Þátttakendum á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar stendur til boða að fá ráðgjöf og stuðning um hvernig best er að koma sér af stað við að vinna efni hvers námskeiðs. Jafnframt fá þeir kynningu á þeirri hugmyndafræði sem námskeið Menntafléttunnar byggja á.
Ráðgjöfin verður sniðin að þörfum þeirra sem sækja um hana og verður án endurgjalds skólaárið 2024-2025.
Sótt er um ráðgjöf á vefsvæði hvers námskeiðs fyrir sig.
Mælt er með að þátttakendur á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar sæki um ráðgjöf til að koma sér af stað við að vinna efni námskeiðsins.
Í kjölfarið fá þeir póst frá sérfræðingi Menntafléttunnar.
Umsjónaraðilar námskeiðs
Ingibjörg Á. Sveinsdóttir
Birte Harksen
Námskeið Content
Sýna meira
Málörvun með sögum og söng
Lota Content
0% Complete
0/5 Steps
Þróunarhringir
Lota Content
0% Complete
0/4 Steps
Lota Content
0% Complete
0/4 Steps
Lota Content
0% Complete
0/4 Steps