Nýliðar í kennslu

Menntafléttunámskeið

september

-

mars

Staða
Ekki skráð/ur
Price
Free
Skráning

Um námskeiðið

Námsskeiðið er hugsað fyrir kennara sem eru að stíga sín fyrstu skref í kennslu og markmiðið því með námskeiðinu að styðja við þátttakendur í því ferli. Nýliðar teljast þeir sem hafa unnið í fimm ár eða skemur. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að fara yfir helstu verkefni og áskoranir sem bíða nýrra kennara. Námskeiðið er hugsað sem námssamfélag þar sem þátttakendur fá verkefni og hugmyndir til að nýta í eigin kennslu ásamt því að geta deilt eigin hugmyndum og reynslu.

Við lok námskeiðs hafa þátttakendur vonandi öðlast dýpri skilning og sjálfsöryggi tengt starfi sínu og starfsumhverfi.


Kennari

Andri Rafn Ottesen grunnskólakennari við Garðaskóla hefur umsjón með námskeiðinu. Andri Rafn lauk B.Ed.-gráðu í grunnskólakennarafræði vorið 2016 frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands og M.Ed.-gráðu vorið 2018 frá sama skóla. Hann hefur undanfarin ár skoðað stöðu karla í kennslu og leiðsögn við nýliða ásamt því að hafa beitt sér fyrir framgangi hugmynda um kandidatsár fyrir nýbrautskráða kennara.


Skipulag námskeiðs

Vika Þema Lýsing
Þróunarhringur 1
Lota 24. september 14:30-16:00
Inngangur að kennslu Kynning á námskeiði, hlutverk kennara, námskenningar, námsumhverfi.
Þróunarhringur 2
Lota 29. október 14:30-16:00
Kennsluaðferðir og endurgjöf Fjölbreyttar kennsluaðferðir, námsstílar, leiðir til mats, endurgjöf, aðalnámskrá.
Þróunarhringur 3
Lota 26. nóvember 14:30-16:00
Nemendur og skólastofan Bekkjarandi, reglur, hegðun, agamál, jákvætt námsumhverfi. Gestakennari: Soffía Ámundadóttir
Þróunarhringur 4
Lota 28. janúar 14:30-16:00
Samskipti og fagmennska Foreldrasamskipti, siðareglur, teymiskennsla. Gestakennari: Elsa Borg Sveinsdóttir
Þróunarhringur 5
Lota 25. febrúar 14:30-16:00
Tækni, fjölbreytileiki og áskoranir Gervigreindin, stafræn kennsla, fjölmenning, áskoranir.
Þróunarhringur 6
Lota 25. mars 14:30-16:00
Sjálfsrækt og framhaldið Samantekt á námskeiði, eftirfylgni, sjálfsrækt, áframhaldandi vinna.

Umsjónaraðilar námskeiðs

Andri Rafn Ottesen

Kennari og fagstjóri í samfélagsgreinum

Soffía Ámundadóttir

Kennari og verkefnastjóri í Menntafléttunni

Innskráning

Ekki með aðgang?

Skráðu þig, það kostar ekkert!

Hafa samband

Uppfæra notanda

Uppfæra notanda