Tengsl og breytingar í stærðfræði fyrir miðstig
Námskeið í Opnu Menntafléttunni
Staða
Ekki skráð/ur
Price
Free
Skráning
Lýsing
Þróunarhringur
Sækja um ráðgjöf
Dagskrá
Tengsl og breytingar í stærðfræði fyrir miðstig
Á námskeiðinu Tengsl og breytingar er fjölbreytt stærðfræðiefni kynnt út frá margskonar sjónarhornum. Kennslufræðileg nálgun námskeiðsins byggir á að unnið sé með opin verkefni, samvinnu nemenda, skráningar og góðan undirbúning kennara.
Námskeiðið byggir á fjórum þróunarhringjum. Í tveimur fyrri þróunarhringjunum er áherslan á að kennarar takist á við að vinna með opin verkefni ásamt því að opna lokuð verkefni. Í tveimur seinni þróunarhringjunum er sjónarhorni beint að samskiptum nemenda í hópverkefnum og mikilvægi bekkjarumræðna og rökfærslu nemenda.
Skráningar eru góður grundvöllur fyrir sameiginlegar umræður samstarfsfólks og undirbúnings kennslustunda og því er mikilvægt að skrá ígrundun sína í dagbók eða safnmöppu. Minnt er á ígrundun og skráningu í hverjum þróunarhring og einnig er minnt á að það er æskilegt að skipulegga vinnu samstarfshópsins á námskeiðinu strax frá upphafi. Mælt er með að safna hugleiðingum á einn stað.
Við lok námskeiðs hafa þátttakendur kynnst:
- Lesefni, myndefni og hugmyndum að viðfangsefnum til að nýta þegar unnið er með tengsl og breytingar í stærðfræðikennslu
- Hvernig má styðja nemendur við að efla hæfni sína í að vinna með opin verkefni í stærðfræði
- Hvernig má styðja nemendur við að vera í góðum samskiptum og eiga innihaldsríkar umræður þegar þeir eru að vinna saman að stærðfræðilegum viðfangsefnum
- Hugmyndum um námssamfélag og hvernig kennarar geta unnið saman í starfsþróun sinni
Námskeiðið byggir á sænskri fyrirmynd frá Skolverket. Í tímaritinu Flatarmál var fjallað um reynslu íslenskra kennara af Menntafléttunámskeiðum.
Mikilvægt er talið að þátttakendur íhugi og skrái hjá sér ígrundanir sínar um efni námskeiðsins og vinnu með nemendum. Skráningarform geta verið margskonar og skráning þarf ekki að taka langan tíma. Hér má sjá myndband (6 mínútur) þar sem Unnur Gísladóttir talar um gildi skráningar í kennslu og einnig má finna hér texta sem fjallar um hvernig dagbókarskrif geta stutt við starfsþróun kennara.
Mælt er með að leiðtogar kynni sér undirbúningsefni sem finna má efst undir námsefni. Þar er meðal annars gerð grein fyrir hlutverki leiðtoga og vinnuferli Menntafléttunámskeiða (veggspjald).
Skólar geta sótt um ráðgjöf og stuðning við innleiðingu viðfangsefna námskeiðsins. Ráðgjöfina annast stærðfræðiteymi Menntafléttu.
Á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar er gert ráð fyrir að þátttakendur nýti þróunarhring í fjórum skrefum, sem styður við samræður um innleiðingu breyttra starfshátta í námi og kennslu. Skrefin fjögur eru:
Skref A: Þátttakendur undirbúa sig með lestri eða áhorfi – og undirbúa spurningar.
Skref B: Þátttakendur funda með teymi sínu og gera áætlun um útfærslu í starfi.
Skref C: Þátttakendur og teymi þeirra framkvæmir áætlun og skrá hjá sér athuganir.
Skref D: Þátttakendur funda aftur með teyminu og ræða hvernig til tókst og hvernig nemendur brugðust við.

Þátttakendum á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar stendur til boða að fá ráðgjöf og stuðning um hvernig best er að koma sér af stað við að vinna efni hvers námskeiðs. Jafnframt fá þeir kynningu á þeirri hugmyndafræði sem námskeið Menntafléttunnar byggja á.
Ráðgjöfin verður sniðin að þörfum þeirra sem sækja um hana og verður án endurgjalds skólaárið 2024-2025.
Sótt er um ráðgjöf á vefsvæði hvers námskeiðs fyrir sig.
Mælt er með að þátttakendur á námskeiðum Opnu Menntafléttunnar sæki um ráðgjöf til að koma sér af stað við að vinna efni námskeiðsins.
Í kjölfarið fá þeir póst frá sérfræðingi Menntafléttunnar.
Umsjónaraðilar námskeiðs
Stærðfræðiteymi Menntafléttu
Námskeið Content
Sýna meira
Undirbúningur
Lota Content
0% Complete
0/5 Steps
Yfirlit námskeiðs
Námskeiðsefni
Lota Content
0% Complete
0/4 Steps
Lota Content
0% Complete
0/4 Steps
Lota Content
0% Complete
0/4 Steps
Lota Content
0% Complete
0/4 Steps